Færsluflokkur: Vísindi og fræði

Mikill snillingur genginn

Þessi hörmungarfrétt fær mig til að lúta höfði af virðingu við frábæran tónlistarmann. Ljóst að dagurinn í dag verður tónlist The Dubliners látin óma á mínu heimili. Þeir snillingarnir í Dubliners hafa alltaf létt mér lund. Frown
mbl.is Stofnandi The Dubliners látinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Botninum er náð

Það er orðið fátt sem kemur á óvart þegar Bandaríkjamenn eru annars vegar en í huga mínum er þetta botninn. Þjóðfélagið hlýtur að vera helsjúkt fyrst þetta er það eina sem menn sjá í stöðunni. Svona fréttir gera mig mjög sorgmæddan.
mbl.is Kennarar fá að bera byssur í Texas
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Faðmlag í skjálftanum

Þar sem ég er að skríða saman eftir skjálftann stóra, get ég farið að sjá spaugilegu hliðarnar á ýmsu sem gerðist á þeim tímapunkti sem hann reið yfir. 

Núna t.d. rennur í gegnum huga mér ansi skemmtileg mynda af þremur fílhraustum karlmönnum sem halda utan um hvern annan í dyrgætt á vinnustaðnum sínum. Því miður er það þannig að ekki hafði flökrað að manni að æfa sig fyrir svona aðstæður. Þannig að einhvern vegin æxlaðist það þannig að fyrsta hugsunina var að fara í dyragætt og þar hittumst við þessir flottu karlar og bara föðmuðumst á meðan á skjálftanum stóð. Hefði verið gaman að eiga mynd af þessu svona eftir á að hyggja. Smile Kannski maður haldi bara áfram að faðma mann og annan í kjölfarið á þessu.


Pétanque

Undanfarin þrjú ár höfum við í minni ætt haldið Pétanque mót að vori til. 
Pétanque er íþrótt sem á uppruna að rekja til Miðjarðarhafsins.  Þeir sem hafa heimsótt þessar suðlægu slóðir hafa kannski tekið eftir fólk við að leika þennan leik úti við.  Allt snýst um að koma málmkúlum sem næst lítilli og nettri trékúlu.  Sá vinnur sem kemst næst henni með sinni málmkúlu.  Á vef Wikipedia má kynna sér leikreglur þessarar tignarlegu íþróttar.  Ég held að það sé löngu orðið tímabært að Íslendingar tileinki sér þessa íþrótt og geri henni hátt undir höfði.  Það má reikna þessari íþrótt það til tekna að nánast aldursflokkar geta leikið hana saman, allt frá heldri borgurum til ungu kynslóðarinnar.  Ljóst er að Pétanque hefu slegið í gegn hjá minni ætt og Pétanque mót hefur fest sig í sessi. Nákvæmni er krafist í Pétanque. Mynd tekin af vef Pétanque klúb Marseille

Engin vettlingatök

Þetta heitir að svara í sömu minnt.  Clees greinilega ekki alveg hitta á réttu orðin þegar hann var að lýsa þessari borg.
mbl.is Ruslahaugur nefndur eftir John Cleese
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðar fréttir

Þetta þykja mér góðar fréttar.  Alltaf verið veikur fyrir gamla góða bragganum.  Mýkt hans er einstök og fáir bílar sem eru standast samanburð við hann í fjöðrun.  Hlakka til að sjá útkomuna.
mbl.is Citroën 2CV endurlífgaður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikil frétt

Ég sé líka fyrir mér að þetta gæti nýst karlmönnum sem hafa minnimáttarkennd gagnvart hárleysi á bringu.Wink


mbl.is Vonir glæðast um að hægt sé að meðhöndla skalla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband