Færsluflokkur: Dægurmál

Verslanir opnar á 17. júní

Ekki er hægt að segja annað en að ég hafi orðið bæði hissa og heykslaður í sömu andránni í gær. Ég komst nefnilega að því að bæði Bónus og Nóatún voru opnar á sjálfan þjóðhátíðardaginn. Woundering

Nú finnst mér fokið flest skjól ef verslunareigendur telja þörf á að hafa verslanir sínar opnar á þessum degi. Einhvern vegin hefur mér þótt þessi dagur alveg heilagur og að þjóðin eigi að fá frí frá vinnu sinni til að fagna sjálfstæðinu. Sá draumur er greinilega á enda. Ég er enn hissa og hneykslaður á gjörð þessara verslunarmanna.


Hjálmurinn bjargar.

Það er aldrei of varlega farið. Þó það líti út fyrir að viðkomandi hafi sloppið. þá held ég að svona frétta ýti við okkur hinum um að nota hjálminn þegar við hjólum. Já og kannski að vera ekki með tónhlöðuna það hátt stillta að engin umhverfishljóð heyrist. Líklegast væri best að sleppa henni og hlusta frekar í öruggara umhverfi.

Kap2_Cykelhjelm_rigtigt006_


mbl.is Hjálmlaus með heyrnartól
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband